|
Þegar
upp koma einhverjir erfiðleikar, áföll eða
missir í fjölskyldum raskast orkuflæðið með
ófyrirsjáanlegum afleiðingum.
Vinnan fellst í því að finna út hvar upphaf
röskunar er, feta sig í gegn um það og ná að
breyta orkuflæðinu svo jafnvægi komist á að
nýju, þannig
að breyting verði á
samskiptum innan fjölskyldunnar.
Hver
fjölskyldumeðlimur á sitt sæti í orkuflæðinu og
ef þeirri stöðu er raskað verður ójafnvægi. Við
þekkjum hvað gerist m.a. í fjölskyldum
alkóhólista. Fjölskyldumeðlimir ganga í
mismunandi hlutverk sem eru ekki í samræmi við
hverjir þeir eru í raun. M.a. taka börn stundum
á sig ábyrgð sem foreldrar eiga að bera. Myndast
við það ójafnvægi í orkuflæðinu.
Þetta
á ekki bara við í slíkum fjölskyldum,
heldur
er eflaust að einhverju leyti í vel flestum
fjölskyldum en e.t.v. í mismiklum mæli.
Ójafnvægið
getur valdið því að einstaklingur finnur sig
ekki og er oft með lága og eða brotna
sjálfsmynd. Einnig getur hann verið stóran hluta
af lífi sínu að reyna að finna út hver hann er í
raun og veru. Á
þennan hátt er einnig hægt að vinna með öll
önnur sambönd, gömul og ný.

AT.H.
Við þurfum að hafa það í huga að allt eru þetta
tilraunir og ekki hægt að gefa loforð um að
árangur náist. Hvert verkefni er tilraun.

Fjölskyldu-uppstilling
Family Constellation
Kærleikssetrið hefur gefið fólki kost á
fjölskyldu-uppstillingu undir umsjón Antons
Giesser, miðils og heilara frá Þýskalandi. Hann
hefur sérhæft sig í þessari einstöku
fjölskyldumeðferð. Fjölskyldu-
uppstilling er kennd í heilbrigðisstéttum í
Þýskalandi, út frá sálfræði og hún er einnig
kennd miðlum og andlega sinnuðu fólki. Anton er
reyndur miðill og hefur unnið við heilun og
fjölskyldu- uppstillingu í mörg ár með góðum
árangri. Þessi aðferðafræði hefur verið notuð
til að leysa erfiðleika í fjölskyldum og
mannlegum samskiptum af ýmsum toga.
Ég hef verið í námi hjá Anton í
þessum fræðum og er byrjuð að bjóða upp á þá
meðferð. Er ég sannfærð um að þetta form
meðferðar á eftir að aukast í framtíðinni. Er ég
búin að vinna við heilun og ráðgjöf í
áratugi.
Fjölskyldu-uppstilling
er meðferð sem heillaði mig strax þegar ég
heyrði um
hana fyrir nokkrum
árum og greip ég því tækifærið að læra
hana
þegar mér bauðst það.
Fellur hún
ákaflega vel inn í mína hugmyndafræði og þá
vinnu sem ég hef tileinkað mér. Fékk ég mjög góð
meðmæli frá Anton um að þessi meðferð hentaði
mér vel.

Tilhögun
námskeiðs:
Aðeins er stillt upp fjölskylda eins í einu og
taka aðrir þátt í að vera einstaklingar úr
fjölskyldu viðkomandi.
Þeir sem hafa
prófað þetta
hafa fundið hvernig
þeir skynja að þeir
yfirtaki orku þess fjölskyldumeðlims sem þeir
taka að sér að
túlka.

Ummæli einstaklings sem lét
stilla upp fjölskyldu:
Eftir að mín fjölskylda var sett upp hefur margt
breyst. Dags daglega líður mér mun betur en
áður, ég er sáttari í alla staði og öruggari með
mig. Ég fékk að sjá ýmsa hluti sem ég e.t.v.
vissi innst inni, en þorði ekki að treysta á að
væru réttir. Lífið er allt skemmtilegra og í
kjölfarið hef ég verið að öðlast ýmis ný
tækifæri. Nú líður mér eins og ég sé búin að
draga frá gluggatjöldin, allt er bjartara og
fallegra en áður. Ég er fyrst og fremst þakklát
fyrir að hafa fengið þessa frábæru handleiðslu.

Ummæli eins statista (í
hlutverki fjölskyldu meðlims):
Síðastliðið vor tók ég þátt í Family
Constellation námskeiði sem Anton Giesser (Toni)
stjórnaði.
Ég
vissi ekki á hverju ég átti von því ég þekkti
ekki þetta námskeiðsform. Við vorum u.þ.b. 10 –
15 þátttakendur. Þegar búið var að raða í
”hlutverkin” spurði Toni hvernig okkur liði.. Ég
vissi varla hverju ég átti að svara, því mér
leið svo undarlega.
Ég
fann til sorgar, reiði, iðrunar og fleiri
kennda sem ég var viss um að ekki tilheyrðu mér.
Ég var allt í einu komin í hlutverk manneskju
sem ég þekkti ekki og hef aldrei séð. Hennar
tilfinningar voru sem sé innra með mér.
Það
er einmitt þannig sem þessi aðferð virkar.
Við tökum inn á
okkur tilfinningar annarra og hjálpumst að við
að skilja og leysa vandamál þeirra sem í hlut
eiga. Ég fékk fjögur “hlutverk” sem öll voru
mjög ólík, eins og gefur að skilja, því þó
vandamálin geti verið lík þá eru persónurnar
ólíkar.
Þessi vinna snart mig djúpt og gaf mér nýja sýn
á hvernig hægt er að hjálpa fólki sem á í
erfiðleikum vegna áfalla s.s. sorga, veikinda
eða annars. Ég tel að þetta meðferðarform geti
hjálpað mörgum, ef þeir hafa kjark til að taka á
sínum vandamálum.
Ég er
þakklát fyrir að hafa fengið að taka þátt í
þessu því þetta gaf mér nýja sýn á hvernig hægt
er að vinna saman að góðum málum.
 |