Heim
Við
Á döfinni
Fréttir
Kjarninn
Fyrirbænir
Sýningar
Tenglar
Myndir
Fróðleikur 

 

Póstur

Fréttir

Munið Gjafabréfin okkar.

Ágúst 2011

Breytingar á húsnæðinu okkar í Mosfellsbænum hafa verið gerðar. Er Kærleikssetrið með meira rými undir starfsemina núna. Er núna möguleiki að vera með námskeið þó ekki mjög fjölmenn fyrr en allt húsnæðið hefur verið tekið í gegn.

 

Apríl 2011

Kærleikssetrið hefur flutt starfssemi sýna frá Álfabakka 12 í Þverholt 5 Mosfellsbæ. Fyrst um sinn verður starfssemin í minna formi en verið hefur en með haustinu verðum komin betri aðstaða og munum við þá bæta við starfsemina nýjum verkefnum.

 

Er í undirbúningi rekstur á lítilli verslun með ýmsar vörur bæði fyrir líkama og sál.

 

Við þökkum öllum þeim sem unnið hafa með okkur í Kærleikssetrinu frá stofnun þess árið 2005 fyrir frábært samstarf og óskum þeim farsældar í öllu sinu starfi í framtíðinni og bjóðum þá sem vinna munu með okkur á nýja staðnum velkomin til starfa.

 

Einnig viljum við þakka öllum velunnurum og viðskiptavinum okkar fyrir gott samstarf og bjóðum þá velkomna á nýja staðinn

 

Janúar 2011

Valgerður Bakkmann Jóhannesdóttir er kominn til starfa hjá Kærleikssetrinu. Mun hún bjóða upp á einkatíma í miðlun og tarotlestri. Bjóðum við hana velkom til starfa.

 

 

September 2010

Kærleikssamtökin hafa flutt starfssemi sína í húsnæði Kærleiksseturs. Bjóðum við samtökin velkomin.

 

Júlí 2009

Guðný Ragnarsdóttir er kominn til starfa hjá Kærleikssetrinu. Mun hún bjóða upp á einkatíma í heilun og höfuðbeina og spjaldhryggjarmeðferð. Bjóðum við hana velkomna til starfa.

 

Júní 2009

Sonja Arnardóttir er kominn til starfa hjá Kærleikssetrinu. Mun hún bjóða upp á einkatíma í svæðanuddi. Bjóðum við hana velkomna til starfa.

 

Maí 2009

Spámiðilinn Guðrún Ívarsdóttir er kominn til starfa hjá Kærleikssetrinu. Mun hún bjóða upp á einkatíma í tarotlestri. Bjóðum við hana velkom til starfa.

 

Apríl 2009

Arnhildur S Magnúsdóttir er aftur komin til starfa í Kærleikssetrinu eftir veikindi. Er hún að byrja að vinna með sérstakt andlitsnudd þar sem þrýst er á áveðna punkta til að lyfta upp andlitsvöðvum. Verður gaman að fylgjast með þessari nýju leið til að halda okkur ungum og fallegum. Bjóðum við hana velkomna til starfa.

 

Mars 2009

Transheilarinn Sigurjón Markús Jóhannsson er kominn til starfa hjá Kærleikssetri. Mun hann bjóða upp á einkatíma í transheilun.Bjóðum við hann velkominn til starfa.

 

8.janúar 2009

Fimmtudaginn 8. janúar kl. 19:30 var haldinn kynningarfundur í Kærleikssetrinu. Kynnt var hópastarfið og dagskrá vetrarins í Kærleikssetrinu.

 

Vorið 2009

Julia Vazey koma hennar frestast til vors vegna veikinda. Stefnir hún á að koma til Íslands vorið 2009. verður hún með einkatíma í leiðsögn og heilun fyrri lífa. Einnig býður hún upp á fyrirlestur og námskeið.

 

Heilunarskóli Karinu Becker

Karina Becker Því miður urðum við af óviðráðanlegum ástæðum að fella niður Heilunarskólann. vonum við að tækifæri skapist á næsta ári. Karina mun því ekki koma til starfa að svo stöddu.

 

31.okt. - 7. nóv. 2008

Suzanna Axisa För hennar til landsins í september frestaðist af óviðráðanlegum ástæðum en hún kemur aftur í byrjun nóvember 2008. Verður hún með einkatíma í transmiðlun. Hún mun einnig verða með námskeið.

Nánar um námskeiðin.

 

27. september 2008

Tarotnámskeið

Auður Andrésdóttir bauð upp á námskeið í lestri Tarotspila. Fólk mætti með sín spil og var því hjálpað við að tengjast spilunu og lesa úr þeim.Var mikil ánægja með námskeiðið. Mun hún verða aftur með slíkt námskeið.

 

Skygnilýsing 26. september 2008.

Isabelle Duchêne  í þessari heimsókn til Íslands starfar hún hjá SRFÍ en hún var með skyggnilýsingarfund föstudaginn 26. september í Kærleikssetrinu. Var fundurinn mjög kröftugur og fengu mjög margir gestir skilaboð.

 

Spámiðlar

Spámiðlarnir Hólmfríður Ásta Steinarsdóttir og Unnur Teits Halldórsdóttir eru komnar til starfa í Kærleikssetrinu. Bjóðum við þær hjartanlea velkomnar til starfa og væntum við góðs af samvinnu við þær í framtíðinni.

 

Sumargöngur með hugleiðslu í júní - ágúst:

Boðið verður upp á kvöldgöngur með hugleiðslu í sumar eins og undanfarin ár.

Göngurnar verða eftirtalin mánudagskvöld: 2/6 - 16/6 - 30/6 - 14/7 - 28/7 - 11/8 - 25/8.

Mæting er á bak við Olís við Vesturlandsveg kl. 20:00.

 

Breytingar í  Kærleikssetri:

Ein af stofnendum Kærleiksseturs Guðný Helga Kristjánsdóttir  er að fara í nám og hefur

selt hlut sinn í Kærleikssetrinu og færum við henni kærar þakkir fyrir ánægjulega samvinnu.

Fylgja henni okkar bestu óskir um bjarta og heillaríka framtíð.

 

Einnig bjóðum við nýja leigendur velkomna í hópinn og óskum þeim alls góðs á nýjum stað.

 

8. - 12. ágúst n.k. Námskeið í transheilun

Steven Upton mun starfa á Íslandi 7 - 11 ágúst næstkomandi og halda námskeið í transheilun.  Einnig mun hann bjóða upp á einkatíma í transheilun.  Hann verður með skyggnilýsingu fimmtudaginn 7.ágúst kl. 20:00, einkatíma dagana 8. ágúst og 11.ágúst. Námskeið í transheilun verður dagana 9. og 10. ágúst kl. 09:30-17:30, báða dagana.  Tökum við tímapöntunum í síma: 567-5088 og kaerleikssetrid@kaerleikssetrid.is

 

Ágúst 2008 - maí 2009 Heilunarskóli Karinu Becker

Karina Becker verður með heilunarskóla í Kærleikssetrinu á tímabilinu frá seinni hluta 22.ágúst 2008 fram til 10.maí 2009. Skólinn stendur í fimm helgar, þrjá daga í senn, frá föstudegi til sunnudags. Mæting er kl. 9:30 og lýkur skólanum um kl. 17:00.

Hún verður með einkatíma í heilun á mánudögum eftir námskeiðin. Hún er mjög öflugur heilari eins og margir sem hafa notið hjálpar hennar hér á landi á undanförnum árum hafa kynnst af eigin raun.

 

Júní 2008

Fimmtudagskvöldið 19.júní kl. 20 var skyggnilýsingarfundur þar sem nemarnir Unnur Teits Halldórsdóttir og Sigurjón Markús Jóhannsson sáu um skyggnilýsinguna. Bryndís og Friðbjörg færðu gestum nokkra fróðleiksmola. Þetta verður endurtekið næsta vetur. Höfum við fengið mjög jákvæð viðbrögð við þessum fundum.mjög góð þáttaka var.

 

Maí 2008

Dagana 23.-26. maí 2008 var ítalski transmiðillinn Suzanna Axisa í Kærleiksetrinu með námskeið og ðieinkatíma. Suzanna var með kvöldnámskeið þar sem hún sat fyrir svörum um lífið og tilveruna og miðlaði fyrir meistarann Lord Lanto ásamt leiddri hugleiðslu. Síðan var hún með einkatíma 24. og 26. maí og þann 25. maí var hún með námskeiðið "Elskaðu sjálfan þig".

 

Mars 2008

Við bjóðum Auði Andrésdóttur hjartanlega velkomna til okkar.  Hún mun verða með Tarotnámskeið og einkatíma í að lesa í spil.

 

Mars 2008

Tim Abbott kom til okkar í mars með miðils og transnámskeið.  Var þetta námskeið mjög hnitmiðað og faglegt.  Tim er frábær kennari og voru allir mjög ánægðir.  Tim kemur aftur til okkar í apríl 2009.

 

Febrúar 2008

Við bjóðum Ernu Jóhannsdóttur hjartanlega velkomna til okkar.  Erna er Sálfræðingur og mun hún vera með einkatíma.

 

Janúar 2008

Við bjóðum Arnhildi S. Magnúsdóttur hjartanlega velkomna til starfa hjá okkur í Kærleikssetrinu.  Hún er með Jóga, S.O.V.  Aromatherapi og Reiki.  

 

Janúar 2008

Vetrardagskráin komin á vefinn

Fjölbreytt dagskrá verður á vorönn hjá okkur í Kærleikssetrinu. Spennandi námskeið, skyggnilýsingarfundir, þróunarhópar, einkatímar í heilun, reiki, ráðgjöf, nudd, nálarstungur, höfuðbeina-og spjaldhryggjarmeðferð,  hómópatia, yoga og margt margt fleira.

 

September 2007

Kjarninn, mannræktarskóli Kærleiksseturs stofnaður.

Markmið skólans er að aðstoða fólk við að tengjast eigin kjarna og að eflast í að hlusta á innsæið. Grunnur kennslunnar verður sjálfsvinna þar sem aðaláhersla verður lögð á að tengjast kjarnanum og efling í að hlusta á innsæið, sem er í raun það eina í lífinu sem er fullkomlega treystandi. Hugleiðslan er m.a góð leið til að ná þeirri tengingu og verður lögð mikil áhersla á hana. Skólinn mun fá marga góða gesti, innanlands og utanlands frá og einnig standa fyrir námskeiðum. Allar nánari upplýsingar hjá Friðbjörgu og Guðnýju eða sendið fyrirspurn á tölvupóstfangið mannraekt@simnet.is.

 

September 2007

Við bjóðum Rakel Dögg Óskarsdóttur hjartanlega velkomna til starfa hjá okkur í Kærleikssetrinu.  Rakel Dögg er með höfuðbeina og spjaldhryggjarmeðferð og  heilun.    

 

Mars 2007

Heimsókn Isabelle Duchêne

Belgíski miðillinn var með námskeið hjá okkur í mars og er von á henni aftur í janúar 2008.

 

Mars 2007

Heilunarskóli Karinu Becker

Heilunarskólanum lauk helgina 9. - 12. mars 2007.   Nýtt námsár hófst í ágúst og september 2007, bæði fyrir byrjendahóp og framhaldshóp. 

Nýir í Kærleikssetrinu

Nokkir kærkomnir félagar bættust við starfshópinn í Kærleikssetrinu frá áramótum. Sjá nánari umfjöllun um þau á síðunni "Við".

 

Maí 2006

Nýir félagar í Kærleikssetri boðnir velkomnir

Enn bætist gott fólk í hóp okkar í Kærleikssetrinu og fjölbreytnin eykst. Bjóðum við þau velkomin í hópinn.

 

 

Herbergi fyrir heila eða hálfa daga til leigu í Kærleikssetri

Hægt er að leiga herbergi í heila eða hálfa daga í Kærleikssetri fyrir starf sem passar vel inn í starfið í Kærleikssetinu. Upplýsingar í Kærleikssetrinu kl. 11 - 14 alla virka daga. 

Kærleikssetrið var opnað þann 10. október 2005.

Eigandi:
Friðbjörg Óskarsdóttir hér.

- Kærleikssetrið - Þverholti 5 Mosfellsbæ - Sími: 567-5088 - póstfang: kaerleikssetrid@kaerleikssetrid.is

Síðast breytt 11.júlí 2006 LÞ


copyright@allart.is