|
Bæn fyrir kærleika.
Við ætlum að deila fallegum draumi - draumi
sem þú vildir helst láta þig dreyma öllum stundum. Í
þessum draumi nýturðu ylsins frá hlýjum sólargeislum. Þú heyrir fuglasöng, þyt í laufi og nið frá litlum læk.
Þú gengur að ánni. Við lækarbakkann situr gamal maður
sem er í hugleiðslu og þú sérð bjart ljós streyma frá höfði
hans í öllum regnbogalitums litum. Þú reynir að trufla
hann ekki en maðurinn verður var við nærveru þína og opna
augun. Augu hans ljóma af kærleika og brosið í þeim er
einlægt. Þú spyrð manninn hvernig hann fari að því að
senda frá sér þetta fallega ljós, hvort hann geti kennt þér
það sem hann sé að gera. Hann segir fyrir löngu hafi
hann einmitt spurt kennara sinn nákvæmlega sömu spurningar. Gamli maðurinn byrjar að segja þér sögu sína: Kennari
minn opnaði brjóst sitt, tók úr því hjartað og fallegan loga. Síðan opnaði hann brjóst mitt og setti
logann inn í hjarta mitt. Síðan setti hann það aftur á
sinn stað og um leið fann ég kærleika streyma um mig því
loginn sem hann setti í hjarta mitt var hans eigin
kærleikur. Þessi logi óx í hjarta mér og varð að
risavöxnum eldi - eldi sem brennir ekki heldur hreinsar allt
sem hann snertir. Eldurinn snerti hverja einustu frumu
líkama míns og frumurnar í líkamanum endurguldu ást mína. Ég varð eitt með líkamanum en ást mín óx jafnvel enn meir. Eldurinn snerti hverja einustu tilfinningu í huga mér og
allar tilfinningarnar umbreyttust í kærleika. Ég
elskaði sjálfan mig skilyrðislaust. Eldurinn hélt
áfram að brenna og ég vildi deila ást minni. Því ákvað
ég að gefa hverju einasta tré, öllum plöntunum, grasinu og
jörðinni hluta af ást minni. Þau endurguldu hana og
við urðum eitt. Enn magnaðist ást mín, ég varð fær um
að elska öll dýrin á jörðinni. Þau svöruðu ást minni
og við urðum eitt. Og ást mín magnaðist stöðugt.
Ég gaf steinum, málmum og moldinni hlutdeild af ást
minni og þeir endurguldu hana og ég varð eitt með jörðinni. Síðan ákvað ég að veita ást minni í vatnið, í hafið, regnið,
og snjóinn og við urðum eitt. Ég fann sterka samkennd
með jörðinni, með vindinum, með hafinu, með nátturinni og
enn magnaðist ást mín. Ég sneri höfðinu í átt til
himins og gaf hverrri stjörnu, tungli og sól brot af ást
minni og ég varð eitt með þeim og ást mín hélt áfram að
magnast. Ég gaf sérhverri manneskju brot af ást minni
og varð eitt með gervöllu mannkyninu. Hvert sem ég fer
og hverjum sem ég mæti, þá sé ég sjálfan mig í augum þeirra,
því ég er hluti af öllu sem ég elska. Síðan opnar
gamli maðurinn brjóst sitt, tekur út logandi hjarta sitt, og
færir logann í hjarta þitt. Núna er ástin að magnast
innra með þér. Núna ert þú eitt með vindinum, vatninu,
stjörnunum, með allri nátturunni, með dýrunum og
mannfólkinu. Þú finnur hitann og ljósið sem streymir
frá loganum í hjarta þér. Frá höfði þínu stafar björtu
ljósi í öllum regnboganslitum og frá þér geislar bjarmi
kærleikans og æ þú biður: Þakka þér, alheimsskapari, fyrir
þessa gjöf sem þú hefur fært mér. Þakka þér fyrir að
hafa gefið mér allt það sem ég þurfti á að halda. Þakka þér fyrir tækifærið til þess að kynnast þessum fallega
líkama og þessari einstöku sál. Þakka þér fyrir að búa
innra með allan þinn kærleik, með þinn hreina og óendanlega
anda, með þitt hlýja og geislandi ljós. Þakka þér
fyrir að nota orð mín og augu, þakka þér fyrir að deila með
mér ást þinni hvert sem ég fer. Ég elska þig
nákvæmlega eins og þú ert og vegna þess að ég er skapari
þinn, þá elska ég mig nákvæmlega eins og ég er.
Hjálpaðu mér að varðveita ástina og friðinn í hjarta mínu og
að láta kærleikann verða minn nýja lífsfarveg svo ég
megi lifa í kærleika það sem eftir er.
Úr bókinni Lífsreglurnar fjórar.
Gleði er bæn.
Þegar þið lítið á lífið með glettni
sýnir það að þið treystið á umhyggju Guðs. Með kímninni
kemur léttleikinn. Það er auðvelt að vera léttur í lund
og kátur þegar þið eruð áhyggjulaus og í raun og veru
hafið þið engar áhyggjur þegar þið vitið af
tengingu ykkar við Guð og kærleika hans. Með því að
viðhalda gleði og hamingju innra með ykkur fylgið þið
áætlun Guðs. Áætlun Guðs fyrir hvert og eitt okkar er
GÓÐ. Það erum við sem höldum að lífið sé erfitt. Það
erum við sem lítum dökkum augum á tilveruna. Fólk heldur
fast í erfileika sína eins
og það lætur sér annt um verðlaunagrip. Losið takið á
vandamálunum, hleypið gleðinni og kímnini inn í lífið ykkar.
Þegar þið opnið huga ykkar fyrir glettni, gleði og hamingju
eruð þið að samstilla ykkur Guði. Um aldir hefur fólk reynt
að finna gleði í lífinu gegnum ytri þætti, drykk, eiturlyf,
og alls kyns samsull. Þessir ytri þættir veita ekki gleði.
Sönn gleði er innri eiginleiki sem næst þegar við erum eitt
með Guði. Þegar þið hafið sannarlega tengst Guði finnið þið
fyrir innri gleði sem er upphefjandi og heilandi. Leggið
ykkur fram við að vera með Guði. Gerið það að takmarki
ykkar. Að vera EITT með Guði er að vera algjörlega með
honum. Þá eruð þið samstillt Guði, mætti hans og kærleika. Í
bæninni er ekkert sem hindrar ykkur í að vera með Guði.
þegar þið biðjið bænir eruð þið að taka við flæðinu frá
guðseðlinu.
Úr bókinni
Boðskapur Maríu til mannkynsins.
 |