Guðbjörg Guðjónsdsdóttir

 Gsm: 897-9509

              

Innsæið er rödd sálarinnar og hjartans 

       

          

Námskeið í næmni

         Kennsla í næmni byggist á því að kenna þér að nota þína næmni og kynnast leiðbeinendum þínum og læra að taka á móti upplýsingum frá þeim og túlka þær. Mér eru sýndar þær upplýsingar sem þú færð svo ég get gefið þér staðfestingar á þeim. Fleiri en eitt námskeið er í boði, eru þau fyrsta-, annað- og þriðja stig.

Hvert og eitt námskeið er sjálfstætt.

 

 

 

Námskeið í heilunarmiðlun:

 

         Þessi námskeið byggjast uppá að læra að finna orkublik þiggjenda og túlka það.  Einnig að taka á móti andlegum upplýsingum og að túlka nismunandi orku. Fleiri en eitt námskeið er í boði, eru þau fyrsta-, annað-

og þriðja stig. Vinnur hún þessi námskeið til að geta unnið meira „maður á mann“ svo fólk fái meira útúr námskeiðunum. Hámarksfjöldi á hverju námskeiði eru 12 manns.

 

         Að vekja upp aukna næmni krefst ábyrgðar einstaklingsins. Hvað felst í því að örva næmni?,, 

Þú finnur fyrir meiri viðkvæmni, því næmnin tengist inn á tilfinningar, og allt sem er ný örvað er viðkvæmt.  Þetta er eins og fræið sem er ný spírað og er að byrja að vaxa. Þú verður að fara varlega með það.

 

        Þá kemur að ræktun fræsins sem þarf næga birtu og yl. Birtan er bænin, ylurinn er kærleikurinn.

Með þessa þætti að leiðarljósi, gengur ræktunin vel.

 

 

 Einkatímar í áru eða leiðbeinendateikningu.

 

        Ég teikna áru þína og les úr henni andlegan og veraldlegan þátt lífs þíns.

Fyrir þá sem komið hafa áður, teikna ég andlegan leiðbeinanda og kem með upplýsingar frá honum.

 

 

Upplýsingar og tímapantanir í síma: 897-9509

www.uppsprettan.com

 


 

Heim  Við

 

- Kærleikssetrið - Þverholti 5 Mosfellsbæ - Sími: 567-5088 - póstfang: kaerleikssetrid@kaerleikssetrid.is -

copyright@allart.is