Hópastarfið:
Grunnur kennslunnar verður
“Kjarnavinna” sem er
sjálfsvinna þar sem aðaláhersla verður lögð á að
tengjast kjarnanum,
tengingu við æðra sjálfið
,
innri þekkingu
sem við höfum öðlast í
gegnum líf okkar
nú og fyrri líf, auka næmnina og tengjast
hæfileikum okkar, einnig efling í að hlusta á
innsæið, sem er í raun það eina í lífinu sem er
fullkomlega treystandi. Einnig að styrkja
sjálfsmyndina. Við veljum sjálf hvað við gerum
með hæfileika okkar. Hugleiðslan er m.a góð
leið til að ná þeirri tengingu og verður lögð
mikil áhersla á hana og verður undirstaða
sjálfsvinnunnar.
Hugtakið “Ég
er” er grunnur námsefnisins. Merking þess er að
í okkar innsta kjarna séum við með tengingu við
okkar eigin guðlega kjarna og við kjarna
Alheimsins.
Nemum verður leiðbeint við að
efla tengingu við hinn guðlega kjarna. Til að ná
þeirri tengingu er nauðsynlegt að þekkja
sjálfan sig, bæði styrkleika og veikleika.
Einnig að skoða hin ýmsu hlutverk okkar í
lífinu.
Áhersla verður lögð á sjálfstæða
hugsun og sjálfsskoðun, bæði sem andlegar og
jarðneskar verur. Í því felst að efla tengingar
okkar við okkur sjálf (efnið og andann),
líkamann, okkar eigin guðlega kjarna og sköpunina
sem við búum öll yfir.
Þeir sem hafa
áhuga á að þjálfa sig áfram í heilun og miðlun
er í undirbúningi breytt form.
Í
hverjum hóp eru 6 - 10 manns. Hóparnir hittast vikulega,
2 klst í senn.
Skyggnilýsing

Heilun

Nemar Kjarnans munu gefa fría
heilun í vetur eins og þeir hafa gert frá hausti
2008.