Agnes Þórhallsdóttir

 Gsm: 611-7748

Kærleikshringurinn

 

                 

Kærleikurinn er undirstaða hamingjunnar

         

 

 Opin bæna-og hugleiðslustund

Hringur sem er til staðar fyrir þá sem vilja finna innri frið, hamingju og jafnvægi.

 

Vináttuhringur sem starfar fyrir heildina og hefur það markmið að halda utan um fólk sem þarfnast þess að vita að það er ekki eitt. Vináttuhringurinn vinnur í gegnum netið og í Kjarnanum, Mannræktarskóla Kærleiksseturs, þar sem  hægt er að biðja um heilun fyrir sig og aðra.

Hugleiðslur Kærleikshringsins eru í þögn til að hjálpa fólki að finna kyrrðina í sjálfum sér og tengjast sínum innri kjarna. Heilun er aðalmarkmiðið fyrir heiminn, mannkynið og er beðið fyrir því í hringnum.

Í Kærleikshringnum eru skilaboðin þau að þú gefur allt það fallega sem þú átt til hinna í hringnum og til sjálfs þíns í orðum og snertingu.

Við heyrum sjaldan hrós fyrir það sem við erum og gerum. Við heyrum frekar það neikvæða innra með okkur og fyrir utan.

 

Kærleikshringurinn er einu sinni í viku á fimmtudögum kl 19:30.

Kostar kr. 1.000 í hvert sinn.

Öll innkoma rennur óskipt til góðgerðamála.

 

   

 

   Allar upplýsingar í Kærleikssetrinu

   Þverholti 5 Mosfellsbæ

   Sími: 567-5088

 

 

 

Heim  Við

 

- Kærleikssetrið - Þverholti 5 Mosfellsbæ - Sími: 567-5088 - póstfang: kaerleikssetrid@kaerleikssetrid.is -

copyright@allart.is