|
Friðbjörg Óskarsdóttir
Gsm:
862-0884
fridosk@simnet.is
Heilun,
ráðgjöf, bæna og kjarnahringir, fræðslufyrirlestrar.


Friðbjörg
starfar við heilun með
leiðsögn, transheilun, kjarna- og
þróunarhópa og heldur fræðslufyrirlestra. Grunnur
hópavinnunnar er að styrkja sjálfsmynd, læra að hlusta á
innsæið vinna með næmnina og skoða hverjir hæfileikar okkar
og draumar eru og styrkja þá. Við
þurfum að velja sjálf hvað við viljum gera við hæfileika
okkar. Þegar við styrkjum sjálfstraustið erum við fær um
að láta draumana rætast, sem við höfum e.t.v. átt í mörg ár
en ekki þorað að framkvæma. Með auknu sjálfstrausti og
trausti á þann kraft sem innra með okkur býr eykst styrkur
okkar að fylgja og treysta innsæinu. Friðbjörg hefur í
mörg ár unnið út frá hugtakinu ''Ég er'' og að skoða ''Hver
við erum'' og “Hver við
viljum vera”. Hún kýs að kalla það “Kjarnavinnu”. Hina
innstu tengingu við æðra sjálfið og þá þekkingu sem við
höfum öðlast í gegnum lífin okkar. Í hugtakinu
''Ég er'' fellst að við erum partur af heildinni og
sköpuninni.
Friðbjörg
hefur í
mörg ár unnið við að leiða fólk í tengingu við sín fyrri líf
og hjálpað þeim við að leysa upp og umbreyta hindrunum sem
hamla þroska og vellíðan í lífi þeirra nú. Í dag er
það viðurkennt af miklum fjölda meðferðaraðila, að margt úr
okkar fyrri lífum getur verið örsök að margvíslegum vanda
bæði andlegum sem líkamlegum í lífi okkar í dag. Þessi
meðferð hefur gjarnan gjörbreytt lífi fólks og vanlíðan sem
e.t.v. hefur lengi verið glímt við horfið.
Friðbjörg
hefur á undanförnum árum unnið mikið með börn og
unglinga sem eiga í örðuguleikum með næmnina og glíma við
allra handa vanlíðan og mun hún gera það áfram. Hún mun
bjóða upp á fræðslufyrirlestra þar sem hún fer inn á
svipuð mál og í hópunum og er hægt að fá hana til að koma í starfsmannhópa, skóla,
saumaklúbba, eða hvers konar aðra hópa.
Friðbjörg
hefur átt sér draum til
margra ára, að stofna skóla og víkka út hópastarfið.
lét hún ásamt þremur öðrum konum þann draum rætast nú
haustið 2007 þegar ''Kjarninn mannræktarskóli
Kærleiksseturs''hóf starfsemi sína. Er hún með miklar
hugmyndir og margar þeirra mjög stórtækar í sambandi við
þróun skólastarfsins. Eiga þær hugmyndir eftir að koma
í ljós í tímana rás. Þar með eru hugmyndir um að fara
í útrás með starfið. Ætlar hún að sýna í verki það sem
hún hefur kennt í mörg ár að við getum, þegar við erum
tilbúin, látið drauma okkar rætast.
Friðbjörg
hélt
utan um hópastarf Sálarrannsóknarfélags Íslands frá 1994 þar
til 1. október 2005 að
Kærleikssetrið
var stofnað og hefur hún verið með hópastarf þar síðan.
Við stofnum Kjarnans mannræktarskóla Kærleiksseturs var allt
hópastarf fært undir hann.



|